Nýjasta nýtt

Nýjar lausnir úr smiðju Alfreðs

Nýjar lausnir úr smiðju Alfreðs

Nýjar lausnir úr smiðju Alfreðs

Á síðustu misserum hefur Alfreð hleypt af stokkunum nokkrum lausnum þar sem gervigreind kemur nokkuð við sögu.

Feature Image 1
Feature Image 1

Hæfnileit Alfreðs

Hæfnileit Alfreðs gerir fyrirtækjum kleift að leita að mögulegum kandídötum meðal þeirra notenda sem hafa skráð sig í lausnina. Hæfnileitin parar starfslýsingu fyrirtækis við notendur sem búa yfir þeirri hæfni sem óskað er eftir. Á örfáum sekúndum getur fyrirtækið þannig séð fjölda mögulegra kandídata sem fá 48 klukkustundir til að gefa kost á sér í starfið. Starfsmannaleitin, sem tekur gjarnan þrjár til fjórar vikur, getur því klárast á tveimur sólarhringum við réttar aðstæður.

Feature Image 2
Feature Image 2

Gervigreindarflokkun umsókna

Gervigreindarflokkun umsókna

G-flokkun umsókna, eða flokkun umsókna með gervigreind, er önnur nýleg lausn frá Alfreð sem nú er komin í prufufasa. G-flokkun les yfir umsóknir og fylgigögn, ber upplýsingarnar saman við lýsingu á viðkomandi starfi og raðar umsækjendum eftir því hversu vel hæfni þeirra samræmist þeim kröfum í starfsauglýsingu.


Flokkun leysir ekki af hólmi faglegt mat eða samtal við umsækjendur, en hún getur einfaldað fyrstu úrvinnslu og skapað betri yfirsýn. Þannig verður gervigreindin stuðningstæki sem hraðar ráðningarferlinu fremur en endanlegur ákvörðunaraðili.

Hafðu samband við okkur ef þú hefur frekari spurningar

Hafðu samband við okkur ef þú hefur frekari spurningar